Fara í efni

Arnar Sigurðsson og
Elías Blöndal Guðjónsson

25.05.2023

VÍN FYRIR STÓRORRUSTUR


GEVREY-CHAMBERTIN

,,Ég man ekki staðinn eða nafn konunnar en ég man að vínið var Chambertin" - Hilaire Belloc

Hér hafa fundist líklega elstu leifar víngerðar frá fyrstu öld en líklega var Napóleon Bonaparte sá sem bar hróður Chambertin ekrunnar víðast enda taldi hann vínið nauðsynlegt í stórorrustum og hafði alltaf meðferðis. Fyrir þá sem ekki vita þá var Napóleon valdamesti maður Evrópu líkt og kaupfélagsstjórinn á Sauðárkróki er í dag.

Eins og glöggir lesendur taka eftir er vínið á myndinni hér að að ofan óvenju ljóst enda drakk Napóleon vínið þynnt út í vatn.Í þá daga hét þorpið reyndar bara Gevrey en árið 1847 ákváðu þorpsbúar að það gæti hentað vel til markaðssetningar á öðrum ekrum umhverfis þorpið að bæta frægustu ekrunni við nafnið þannig að úr varð Gevrey-Chambertin. Reyndar má segja að ekran eigi sér systurekru sem er ekki síðri og heitir Chambertin Clos des Béze.

STERKBYGGÐ OG MIKIL VÍN

Bestu vín svæðisins eru gjarna með rauðberja keim (jarðaber) en sterkbyggð og mikil af Pinot Noir vínum að vera. Að okkar mati eru vínin úr Charmes Chambertin hlutfallslega góð kaup og tilbúin fyrr miðað við Chambertin en einungis mjór vegur skilur að ekrurnar í sömu hlíð. Báðar þessar ekrur virðast hafa nægan yfirborðsjarðveg og gefa góð vín í öllum árum en Charmes er ekki alveg jafn einsleit í gæðum.

KÓNGURINN Í ÞORPINU

Kóngurinn í þorpinu er Armand Rousseau sem rekið er af fjórða ættlið Eric Rousseau sem hefur heimsótt höfuðstöðvar Sante á Eyjarslóð og tekið hringferð um landið (kvartaði reyndar undan vínúrvali í sveitum landsins). Eric setti mark sitt á víngerðina með því að hætta öllum eiturefnahernaði við ræktunina. Heimsóknir hingað eru auðvitað forréttindin einu sinni á ári, nokkurskonar jólahátíð vínáhugamanns. Sérstaklega áhugavert er að smakka vín af ekrunni Clos st. Jacques sem er í miklum halla og eru vínin gerð í þremur hlutum, efst, mið og neðsta sem svo er blandað saman í eitt vín fyrir átöppun.

HUMBERT FRÉRES

Óhætt er að segja að okkar Emanuel Humbert hafi slegið í gegn hjá vandlátum vínkaupendum hér á landi. Við fyrstu sýn mætti halda að ekrurnar væru allar í órækt sem að vissu leiti er rétt því hér kemur illgresiseyðir hvergi nærri ræktuninni frekar en skordýraeitur því samkeppni frá gróðri í yfirborðinu, neyðir vínviðinn til að róta sig dýpra og þá í gegnum fleiri jarðlög sem getur af sér fjölþættari vín.

Öll vín hússins koma frá Gevrey-Chambertin ef frá er talið Fixin sem kemur af gömlum vínvið sem vex við samnefnt þorp.Í seinni tíð hefur Humbert aukið notkun á keilulaga tunnum sem talin eru gefa víninu aukið vægi á móti eikinni en nákvæmlega hvað það þýðir er ekki ljóst né eru allir vínbændur sammála frekar en við er að búast. Humbert hins vegar notar orðið 100% nýja eik í flest vín sem gerir þau óneitanlega eikuð á unglingsárunum sem svo samþættist í vínið með nokkura ára geymslu. Okkar maður sló ekki feilnótu í 2021 árganginum frekar en þeim sem á undan komu. Hér eru það rauðir ávextir í bakgrunni (jarðaber, kirsuber) og algert flauel, sér í lagi fyrir þá sem hafa biðlund í 1-5 ár. Árgangurinn er óvenju ljós og eftir því nánast laus við tannín, algerlega á öndverðum meiði við 2020 árganginn.

AF SEÐLINUM

MATUR

VÍNVIÐURINN

BJÓRVAKTIN